Hann lifir
En samt tæplega.Lag dagsins og það ekki í fyrsta skipti: For Your Love með Yardbirds.
Ciao
Ég hef öðru hvoru verið að glugga í merka bók er heitir því þjála nafni „Allt sem þú hefur viljað vita um kynlífið * en ekki þorað að spyrja um" eftir David Reuben í þýðingu Páls Heiðars Jónssonar. Á frummálinu heitir hún „Everything You Always Wanted to Know About Sex * But Were Afraid to Ask" og 1972 kom út samnefnd bíómynd í leikstjórn Woody Allen. Bók þessi kom fyrst út 1969 en í íslenskri þýðingu 1972.
Bókin er hafsjór fróðleiks og til dæmis eru þarna kaflar um kynfæri bæði karla og kvenna, kynkulda, vændi, sjálfsfróun og kynvillu karlmanna svo einhver dæmi séu tekin. Þó er enginn kafli um kynvillu kvenmanna.
Kaflarnir eru þannig uppbyggðir að hver kafli hefst á spurningu og viðeigandi svar kemur í kjölfarið og svo næsta spurning og svo koll af kolli.
Eitt af því skemmtilegra sem ég hef lesið er í kafla um getnaðarvarnir og þar er tæpt á nokkrum upplausnum til skolunar eftir samfarir.
Í lok svars um hvað upplausn sé best til getnaðarvarna kemur
þessi klausa hér „kannski er önnur upplausn til, sem er fullt eins heppileg." Og þá í beinu framhaldi kemur næsta spurning og skellum okkur þá í beina tilvitnun:
Hver er hún?
Kóka kóla. Þetta er vinsæll svaladrykkur, en auk þess ein bezta upplausn, sem völ er á. Kóka kóla inniheldur „carbonic acid" eða kolsýru, sem drepur sæðið, og sykur sem sprengir sæðisfrumurnar. Kolsýringurinn sér um að vökvinn nær til allra fellinga í vagínunni og slímhúð hennar. Kók er tiltölulega ódýrt, fæst víðast hvar og auðvelt að losna við umbúðirnar eftir notkun.
Hvernig er það þá notað?
Það er óþarfi fyrir konuna að fara fram úr að samförunum afstöðnum. Hún teygir sig bara í flöskuna á náttborðinu, opnar hana, stingur þumalfingri í stútinn og hristir hana vel og rækilega. Að því loknu leggur hún stútinn við vagínuna og setur skál undir sitjandann. Ein flaska nægir til hverrar skolunar.
Síðan kemur fram að aðferð sem þessi sé nú ekki mjög örugg og að ómögulegt sé að njóta kynmaka almennilega ef fólk þarf að drífa sig í aðgerðir sem þessa strax að loknum látunum. En skemmtilegt er þetta engu að síður.
Þannig að ef einhverjar spurningar vakna í sambandi við kynlífið þá hikið ekki að spyrja, ég mun að öllum líkindum hafa svör á reiðum höndum.
Kveðja
Herra ráðgjafi.
Uppfært: 15:30.
Þetta sem ég skrifaði í morgun las ég í gær og hafði aldrei heyrt áður. En nú rétt í þessu var ég að lesa grein á mbl.is um að kók sé ekki góð getnaðarvörn. Þetta finnst mér skemmtileg tilviljun. Hér er tengill á greinina.